Í gegnum árin hefur Lostæti mettað þúsundir veislugesta og er það okkar von að allir séu á sama máli um ágæti veitinganna.
Við tryggjum besta mögulega hráefni hverju sinni og reynum að hafa þjónustuna persónulega og faglega af öllum toga.
Einnig höfum við tekið að okkur að sjá um alla hluta veislunnar, þ.e. útvega veislusali, skemmtiatriði ofl.
Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú hefur spurningar.
Að gefnu tilefni viljum við taka fram að okkar veisluþjónusta er staðsett á Akureyri.
Sölustjóri Lostætis er Árni Már:
arnimar@lostaeti.is - s: 455-3706
Yfirmatreiðslumaður í Norðurlyst er Konráð Vestmann:
konni@lostaeti.is - s: 455-3701