Kaffitería VMA

Markmið Verkmenntaskólans á Akureyri er meðal annars „að undirbúa nemendur undir líf og störf í samfélaginu” eins og lesa má á heimasíðu skólans. Lostæti

kaffitería vma

Markmið Verkmenntaskólans á Akureyri er meðal annars „að undirbúa nemendur undir líf og störf í samfélaginu” eins og lesa má á heimasíðu skólans.Kaffitería VMA Lostæti leggur sitt af mörkum við þann undirbúning með veru sinni og markmiðum.

Lostæti tók við rekstri Kaffiteríu VMA haustið 2005. Veitingasala Lostætis í Kaffiteríu VMA hefur að markmiði að koma til móts við þarfir og áhuga sem flestra í hinum víðtæka hópi viðskiptavina. Hollusta, fjölbreytni og þjónustulund eru kjörorðin sem starfsemin byggist á. Lostæti sér bæði um að setja upp hlaðborð fyrir starfsmenn skólans í mötuneyti þeirra ásamt því að reka kaffiteríuna í Gryfjunni, fyrir alla nemendur og gesti skólans. Frá áramótum gerði Lostæti samning við Te&Kaffi og býður því viðskiptavinum sínum upp á eðalkaffi alla opnunardaga.

Alla daga er boðið upp á heitan mat í hádeginu, ásamt ýmsum léttum réttum s.s. nýbökuðu brauði, smurðum samlokum, mjólkurvörum o.fl. góðgæti.

Kaffitería VMA er opin alla virka daga:
Mánudaga - fimmtudaga (þegar skólinn er starfandi) frá kl. 07:50 - 15:40
Föstudaga (þegar skólinn er starfandi) frá 07:50 - 13:00

Þjónustustjóri Kaffiteríu VMA er Sylvía Steinunn Benediktsdóttir.

Kaffitería VMA
Verkmenntaskólanum á Akureyri
sími: 455-3709
vma@lostaeti.is

Sjá Matseðil