Háskólinn á Akureyri er eins og segir á heimasíðu hans „stærsti háskólinn á landsbyggðinni með sterk tengsl við atvinnulífið og ýmsar stofnanir í
þjóðfélaginu, fjölbreytt námsframboð og fjarkennslu.“
Lostæti hefur séð um alla veitingasölu í Háskólanum á Akureyri frá árinu 2000. Frá byrjun árs 2011 fékk starfsemin nafnið Kaffi Hóll og aðstaðan öll uppfærð í ferskari búning. Meðal annars má nefna að Lostæti hefur nú gert samning við Te & Kaffi og með því er starfsemin komin með faglegan kaffihúsabrag. Nú er t.d. hægt er að fá sér handlagað Espresso eða Cappucino úr sérstakri Espressovél, útbúið af þekkingu og metnaði.
Kaffi Hóll býður upp á heitan mat í hádeginu ásamt súpu og úrvali af léttum réttum. Jafnframt er boðið upp á nýbökuð brauð og kökur, úrvals smurt brauð, mjólkurvörur, gosdrykki, sælgæti ofl.
Kaffi Hóll er opinn alla virka daga:
Mánudaga - fimmtudaga (þegar skólinn er starfandi) frá kl. 08:00 - 15:20
Föstudaga (þegar skólinn er starfandi) frá 08:00 - 14:00
Einnig er opið stakar helgar og er það auglýst sérstaklega.
Þjónustustjóri Kaffi Hóls er Kristín Geirsdóttir.
Kaffi Hóll
Háskólanum á Akureyri
sími: 455-3708
ha@lostaeti.is