Aðal framleiðslueldhús í Norðurlyst er í daglegu tali nefnt NAUST. 
Þar fer meginframleiðsla á öllum veitingum fyrir heildarþjónustu fyrirtækisins fram.
Starfsemin skiptist í HEITA og KALDA Eldhús.
Yfirmatreiðslumaður í Lostæti-Norðurlyst er Konráð V. Þorsteinsson.
Heita eldhús sér um alla framleiðslu, pökkun og frágang á heitum réttum fyrir allar útfærslur á þjónustu, hvort sem um er að ræða einstaklingsbakka eða stærri sendingar. Stærri sendingarnar fara ýmist á hlaðborð í fyrirtækjum, eða út í kaffiteríurnar sem Lostæti rekur. Í heita eldhúsi eru einnig útbúnir allir heitir réttir fyrir veislur.

Kalda eldhús sér um alla framleiðslu, pökkun og frágang á köldum réttum. Þ.e. alla kalda rétti sem fara í einstaklingsbakka, veitingar á hlaðborð í fyrirtækjum, brauð, salöt o.fl. sem tilheyrir í daglegri þjónustu.
Í kalda elhúsi eru jafnframt gerð ávaxta-, grænmetis-, pasta og kjúlingabox, ásamt tortillum sem seld eru í kaffiteríum okkar. Kalda eldhús hefur einnig umsjón með Ávaxtalandi og sér um alla brauðrétti og pinnamat fyrir veisluþjónustuna.
Sjávarsíðan er veitingasalur sem starfræktur er í sama húsi og framleiðslueldhúsið og getur tekið rúmlega 100 manns í sæti. Sjávarsíðan er fyrst og fremst nýtt í hádeginu af iðnaðarmönnum sem starfa á svæðinu í kringum starfsstöðina.