Þann 1. janúar 2010 var fyrirtækinu skipt upp í landshlutadeildir og nú heitir Akureyrardeildin Lostæti-Norðurlyst
Starfsemi Lostætis-Norðurlystar á Akureyri skiptist á eftirfarandi hátt:
NAUST, sem er aðal-framleiðsueldhús og meginstarfsstöð á Akureyri, er staðsett í Naustatanga 1.
SJÁVARSÍÐAN, sem er matstofa Naustatanga 1.
KAFFI HÓLL, sem er kaffitería og veitingaþjónusta starfrækt í Háskólanum á Akureyri.
KAFFITERÍA VMA, sem er starfrækt í Verkmenntaskólans á Akureyri
ÁVAXTALAND, sem er m.a. áskriftaþjónusta á ávaxtasendingum í fyrirtæki.
Skrifstofa og stjórnstöð Lostætis er jafnframt staðsett á Akureyri og er opin alla virka daga frá 9:00 til 14:00.
Beint símanúmer á skrifstofu er 455-3713 og tölvupóstur er lostaeti@lostaeti.is
Lostæti-Norðurlyst býður upp á ýmsar þjónustuleiðir á Akureyri og nágrenni:
Fyrirtækjaþjónusta Lostætis felur í sér nokkrar útfærslur.
- Daglegar pantanir – valið af matseðli: Starfsmenn fyrirtækja panta af matseðli fyrir hvern dag.
- Hópamatur – áskrift: Lostæti kemur með matinn í stórum einingum í fyrirtækið.
- Hádegisþjónusta – heildarlausn: Lostæti setur upp hlaðborð í fyrirtækjum og fylgir því eftir með umsjón og frágangi.
- Rekstur mötuneyta – heildarumsjón: Lostæti er verktaki inni í fyrirtæki og rekur mötuneyti með fullri umsjón og mönnun á staðnum.
Veisluþjónusta Lostætis hefur fagmennsku og fjölbreytni að leiðarljósi.
Markmið Lostætis er að uppfylla væntingar viðskiptavina sinna, hvort sem veislan er nett pinnaveisla fyrir 20 manns eða stórt hlaðborð fyrir 500 manns.
Ávaxtaþjónusta Lostætis nefnist Ávaxtaland.
Vinsælasti þjónustuliðurinn í þessari grein eru ávaxtakörfurnar sem sendar eru til viðskiptavina í áksrift. Jafnframt er boðið upp á ávaxtabakka og ávaxtabox af ýmsum stærðum.