Lostæti

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

  • Matarbakki
  • 3x
  • Alcoa2
  • veisla1
  • Alcoa
  • Ávaxtabakki
  • webb001
  • HA
  • Veisla2
  • Veisla

Stefna Lostætis leggur áherslu á að vera með fagfólk í hverju rými. Markmiðin snúast um það að framleiða veitingar á listrænan og faglegan hátt til að uppfylla væntingar viðskiptavina sinna um lystaukandi veitingar, sannkallað lostæti á hvern disk.Ýttu hér til að skoða þorrahlaðborðin

Lostæti Norðurlyst / Austurlyst

Lostæti, sem stofnað var árið 1996 er með starfsemi bæði á Akureyri og í Fjarðabyggð. Starfsemin á Akureyri er rekin undir nafninu Lostæti-Norðurlyst og Austfjarðadeildin heitir  Lostæti-Austurlyst.

Meðalfjöldi heildarviðskiptavina Lostætis hvern virkan dag er á bilinu
1500-1700.

Markmið Lostætis er að bjóða aðeins upp á það besta, hvort sem um hráefni eða þjónustu er að ræða. Gæði, áreiðanleiki og þjónustulund eru stæstu gildin sem höfð eru í heiðri í öllum viðskiptum. Meginstarfsemi Lostætis er fólgin í fyrirtækjaþjónustu í nokkrum útfærslum. Fjölbreytni í veitingum er því mikilvægur þáttur og stöðug endurnýjun matseðla stór þáttur í starfi fagmannanna.

fyrirtæki

Fyrirtækjaþjónustan miðar að því að koma til móts við þarfir og væntingar fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum og starfsmanna þeirra.

Veldu eina af fjórum frábærum leiðum sem Lostæti býður upp á. Sjá hér

Lostæti leggur mikið upp úr vellíðan starfsmanna, starfsánægju og góðum starfsanda. Allir starfsmenn gegna mikilvægu hlutverki í að mynda sterka óslitna keðju í fagmennsku.

Lostæti getur státað sig af því að vera með fleiri menntaða fagmenn í starfi en víðast hvar í sambærilegum fyrirtækjum á Íslandi.

Hjá fyrirtækinu starfa m.a. 11 faglærðir matreiðslumenn og að auki bakari, matartæknir og smurbrauðsdama sem með sameiginlegum kröftum tryggja fagmennsku allrar þjónustu Lostætis.